Skip to main content

Við tökum að okkur flest alla sérvinnslu á timbri. Hvort sem það eru sérstakar stærðir, sérstök áferð eða sviðið timbur. Ef þú ert með hugmynd þá erum við til í að hlusta. Það er fátt sem við getum ekki gert með okkar fjölbreytta tækjakosti. Ef að þú hefur einhverjar óskir um hvernig þú vilt fá þitt íslenska timbur eða hráefni úr skóginum unnið þá reynum við að finna lausnina með þér á einfaldan máta.

Jafnframt tökum við aðkeypt timbur í sérvinnslu ef þú þarft að láta vinna það sérstaklega fyrir þig.